Til baka

Reglur keppninnar

Opinberar reglur Söngkeppni framhaldsskólanna 2026. Reglur þessar taka gildi 1. febrúar 2026.

1

Hvað er Söngkeppni framhaldsskólanna?

Söngkeppni framhaldsskólanna er menningar- og hæfileikakeppni þar sem nemendafélög framhaldsskóla á Íslandi keppa um að finna besta söngvara landsins.

Hvert nemendafélag tilnefnir einn keppanda í gegnum undankeppni innan síns skóla. Allir framhaldsskólar á Íslandi eiga rétt á þátttöku.

2

Fyrirkomulag keppninnar

  • Keppnin fer fram í beinni sjónvarpsútsendingu.
  • Söngkeppni framhaldsskólanna 2026 fer fram 11. apríl 2026.
  • Framkvæmdastjórn áskilur sér rétt til að breyta dagsetningu ef sérstakar aðstæður krefjast þess, með hæfilegum fyrirvara.
  • Hver skóli sendir einn keppanda.
  • Keppendur flytja eitt lag, sungið á íslensku.
  • Sigurvegari er valinn með sameiginlegu vægi dómnefndar og símakosningar.
3

Samþykki reglna og ábyrgð

Með þátttöku í Söngkeppni framhaldsskólanna samþykkir keppandi og viðkomandi nemendafélag reglur þessar í heild sinni.

Framkvæmd keppninnar er í höndum Söngkeppni ehf. Félagið ber ekki ábyrgð á tjóni sem keppendur kunna að verða fyrir nema um sé að ræða ásetning eða stórkostlegt gáleysi framkvæmdaraðila.

4

Val á vinningslagi

  • Símakosning hefst með niðurtalningu kynna í sjónvarpi og lýkur að loknum flutningi síðasta lags.
  • Að loknum flutningi allra keppenda kýs dómnefnd og skilar niðurstöðu til framkvæmdastjórnar.

Vægi niðurstöðu:

Dómnefnd: 50%
Símakosning: 50%
5

Þátttökuskilyrði – keppendur, lög og textar

a.

Stranglega bannað er að koma fram undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna.

b.

Keppandi skal vera skráður nemandi í framhaldsskóla á Íslandi.

c.

Keppnislag má vera frumsamið eða tökulag.

d.

Öll lög skulu vera sungin á íslensku. Ef lag er upprunalega með erlendum texta skal útvega laginu nýjan íslenskan texta.

e.

Höfundar íslenskra texta þurfa ekki að vera nemendur í framhaldsskóla.

f.

Hámarkslengd laga er 3 mínútur. Framkvæmdastjórn getur ákveðið styttri hámarkstíma eftir fjölda þátttakenda. Fari lag yfir leyfilegan tíma skal það stytt í samvinnu við tónlistarstjóra.

g.

Söngkeppni framhaldsskólanna leggur almennt til sameiginlega hljómsveit sem leikur undir hjá öllum keppendum, í þágu jafnræðis og öruggrar framkvæmdar keppninnar í beinni útsendingu.

Framkvæmdastjórn áskilur sér rétt til að heimila þátttöku hljómsveitar við sérstakar aðstæður, þyki slíkt fyrirkomulag hæfa framkvæmd keppninnar hverju sinni.

Ef fleiri hljómsveitir sækja um þátttöku en unnt er að heimila, skal framkvæmdastjórn velja úr umsóknum á grundvelli tæknilegra, dagskrárlegra og framkvæmdalegra forsendna, með hliðsjón af einfaldleika, jafnræði og flæði keppninnar.

Slík ákvörðun skal tekin fyrirfram, vera rökstudd og gilda jafnt um þá keppendur sem hún nær til.

Keppandi eða nemendafélag getur ekki krafist þátttöku hljómsveitar sinnar.

h.

Óski keppandi af erlendum uppruna eftir undanþágu frá íslenskum texta skal nemendafélag senda skriflega beiðni til framkvæmdastjórnar með rökstuðningi.

6

Dómnefnd og símakosning

a.

Framkvæmdastjórn skipar þriggja manna dómnefnd skipaða fagfólki á sviði tónlistar.

b.

Vægi dómnefndar er 50% á móti 50% vægi símakosningar.

c.

Komi upp veruleg tæknileg vandamál við símakosningu sem ekki er unnt að bæta úr innan sanngjarns tíma ákveður framkvæmdastjórn hvort:

  • • úrslit byggist alfarið á mati dómnefndar, eða
  • • keppni verði frestað að hluta eða öllu leyti.

Ákvörðun framkvæmdastjórnar er endanleg.

7

Tónlistarstjóri og hljómsveit

a.

Tónlistarstjóri stýrir útsetningu laga og æfingum með keppendum.

b.

Tónlistarstjóri aðstoðar keppendur við útfærslu laga og val á tóntegund.

c.

Jafnræðis skal gætt við úthlutun æfingatíma.

8

Kynningarstarf og útsending

a.

Nemendafélag skal senda inn kynningarmynd af keppanda til notkunar í kynningarefni og útsendingu.

b.

Framleidd verða stutt kynningarinnslög um keppendur og skóla þeirra.

c.

Innslög og útsending eru framleidd í samstarfi við RÚV.

9

Höfundaréttur og nýting efnis

Keppendur veita Söngkeppni ehf. og RÚV heimild til að taka upp, sýna, endursýna og miðla flutningi sínum í tengslum við keppnina, án sérstaks endurgjalds.

Höfundaréttur að lögum og textum helst hjá rétthöfum.

10

Siðareglur og hegðun

Ósæmileg hegðun er óheimil. Þar undir fellur m.a.:

  • • kynferðisleg eða ofbeldisfull framsetning,
  • • hatursorðræða eða mismunun,
  • • framkoma sem brýtur gegn almennum siðareglum sjónvarpsútsendinga.

Ákvörðun um brot á siðareglum skal tekin af framkvæmdastjórn í samráði við RÚV og vera rökstudd.

11

Brot á reglum og útilokun

Komi til brota á reglum skal keppanda, eftir því sem kostur er, gefinn kostur á að tjá sig áður en ákvörðun er tekin.

Við alvarleg eða augljós brot getur framkvæmdastjórn gripið til tafarlausra aðgerða, þar með talið útilokunar.

Allar ákvarðanir um útilokun skulu vera rökstuddar.

12

Force majeure

Verði keppni ekki haldin eða raskist vegna óviðráðanlegra atvika, svo sem náttúruhamfara, verkfalla, tæknibilana eða annarra sambærilegra aðstæðna, áskilur framkvæmdastjórn sér rétt til að breyta fyrirkomulagi, fresta eða fella niður keppni án bótaskyldu.

13

Framkvæmdastjórn

Framkvæmd og ábyrgð keppninnar er í höndum Söngkeppni ehf.

Framkvæmdastjórn er skipuð:

  • • Framkvæmdastjóra Söngkeppni ehf.
  • • Verkefnastjóra sjónvarpsútsendingar f.h. RÚV
  • • Tónlistarstjóra Söngkeppni framhaldsskólanna
  • • Formanni SÍF

Hlutverk framkvæmdastjórnar er að leysa ágreiningsefni og móta stefnu keppninnar ár hvert.

14

Gildistími og breytingar

Reglur þessar taka gildi 1. febrúar 2026 og gilda í eitt ár í senn.

Framkvæmdastjórn getur gert breytingar á reglum vegna tæknilegra eða skipulagslegra aðstæðna. Breytingar sem hafa áhrif á keppnisfyrirkomulag, þátttökuskilyrði eða vægi atkvæða skulu ekki taka gildi eftir að skráningu keppenda er lokið nema með samþykki viðkomandi nemendafélaga.

Hefurðu spurningar um reglur keppninnar?

Hafðu samband